Aukin eftirspurn í Kína eftir laxi

200 mílur | Morgunblaðið | 3.11.2026 | 5:30

Höfuðstöðvar Queen's Fish í Kína sem flytur inn íslenskan lax.

Höfuðstöðvar Queen's Fish í Kína sem flytur inn íslenskan lax. mbl.is/Baldur

Gríðarleg tækifæri eru til að auka útflutning á íslenskum laxi til Kína og er eftirspurnin mun meiri en Íslendingar geta annað. Þetta kom fram í máli Jins Gaofa, forstjóra kínversku laxvinnslunnar Queen's Fish í Qingdao, á kynningarfundi Íslandsstofu með fulltrúum íslensks sjávarútvegs.

Nýhafið beint flug Air China á milli Íslands og Kína breytir miklu fyrir útflutninginn, enda skiptir ferskleiki matvæla sköpum og tryggir hæsta verðið á markaðnum. Að sögn Gaofa gæti virði kínverska innflutningsmarkaðarins fyrir lax fimmfaldast á næstu árum og farið úr 20 milljörðum júana í ríflega 100 milljarða, sem samsvarar um 1.830 milljörðum íslenskra króna. Meðalneysla á laxi er enn lítil í Kína eða um 157 grömm á mann á ári. Salan fer að miklu leyti fram í gegnum netverslun og áhrifavalda í beinum útsendingum. Helsti markhópurinn er konur á aldrinum 30 til 45 ára. Vegna aukins vaxtar áformar fyrirtækið að byggja tvær nýjar laxavinnslur í Kína.

Gaofa telur íslenskan lax eiga mikla möguleika og hafa góða ímynd í Kína. Hann kallar þó á öflugra kynningarstarf til að íslenski laxinn nái sömu stöðu og lax frá Noregi. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅