Áhugi hjá fleirum en Samkaupum

Gísli Sigurbergsson framkvæmdastjóri Fjarðarkaupa.

Fleiri en einn aðili höfðu áhuga á að kaupa verslunina Fjarðarkaup í Hafnarfirði að sögn Gísla Sigurbergssonar framkvæmdastjóra.

Í gær voru tilkynnt kaup Samkaupa á verslunarrekstrinum. Einnig var sagt frá kaupum fasteignafélagsins Kaldalóns á fasteigninni sem verslunin er starfrækt í.

Gísli segir söluferlið hafa hafist fyrir um sex mánuðum þegar fjölskyldan leitaði að samstarfsaðilum til að hafa yfirumsjón með viðskiptunum. „Við völdum Arion banka til samvinnu og fórum svo að skoða mögulega kaupendur.“

Gísli segir að hann og þrjú systkini hans hafi farið að velta fyrir sér framtíð Fjarðarkaupa fyrir þremur árum, er faðir þeirra lést.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅