Dómarinn skellihló með leikmönnum Arsenal

Andy Madley hlær með leikmönnum Arsenal í gær.

Andy Madley hlær með leikmönnum Arsenal í gær. Ljósmynd/Skjáskot

Stuðningsmenn Liverpool hafa gagnrýnt dómarann Andy Madley eftir að hann sást hlæja og grínast með leikmönnum Arsenal í hálfleik í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær.

Það pirraði stuðningsmenn Liverpool sérstaklega að atvikið gerðist í kjölfar þess að Madley dæmdi ekki það sem virtist vera augljóst víti sem Liverpool átti að fá í fyrri hálfleik.

Kai Havertz skoraði sigurmark Arsenal sem vann 1:0 og tryggði sér þar með fyrsta sigur sinn á Anfield síðan í september 2012.

Með úrslitunum komst Arsenal þremur stigum fram úr Manchester City á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅