Barry hetja Everton
Everton gerði góða ferð til Newcastle og vann 1:0-útisigur er liðin mættust í lokaleik 9. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld.
Með sigrinum fór Everton upp í sjöunda sæti þar sem liðið er með 13 stig. Newcastle er í 13. sæti með ellefu stig.
Thierno Barry skoraði sigurmark Everton á 49. mínútu.
Vont varð verra fyrir Newcastle í uppbótartíma þegar Jacob Ramsey fékk tvö gul spjöld með stuttu millibili og þar með rautt.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗