Ása Marin kann að halda búbbluboð!
Rithöfundurinn Ása Marin hefur heillað lesendur upp úr skónum með rómantískum ástarsögum úr raunveruleikanum. Á dögunum fagnaði hún útkomu bókar sinnar Öruggt skjól á Eskifirði í hópi góðra vina og aðdáenda.
Veisluhöldin fóru fram í bókabúð Forlagsins við Fiskislóð. Þangað mættu góðir gestir eins og Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona og útvarpsstjarna á K100, Nanna Rögnvaldardóttir rithöfundur, Sigríður Pétursdóttir útvarpsstjarna og rithöfundur, Sigríður Ásta Árnadóttir ritstjóri hjá Forlaginu og Margrét Höskuldsdóttir rithöfundur.
Í nýjustu bók sinni skrifar Ása Marin um Kristínu sem er með marga bolta á lofti. Hún er mest hissa á því að Sirkus Íslands hafi ekki haft samband því það gengur svo mikið á í lífi hennar. Þegar hún er við það að bugast ákveður hún að fara í ferðalag Austur á firði og gefa skít í daglegt strit. Það er einmitt þá sem fjallmyndarlegur maður birtist eins og prinsinn á hvíta hestinum!
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗





