Szoboszlai pirraður: Eigum við að henda okkur niður?

Dominik Szoboszlai var ósáttur.

Dominik Szoboszlai var ósáttur. AFP/Darren Staples

Dominik Szoboszlai, leikmaður Liverpool, veltir því fyrir sér hvort leikmenn þurfi að henda sér niður til að fá vítaspyrnu eftir að Alexander Isak fékk ekki vítaspyrnu gegn Arsenal.

Jurriën Timber togaði í treyju Isaks þegar framherjinn reyndi að ná til boltans eftir fyrirgjöf í 1:0-tapi Liverpool á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í gær.

„Timber er alveg sama um boltann, og ef hann hefði ekki togað í treyju Alex hefði Alex kannski getað skallað hann í markið,“ sagði Szoboszlai við Sky Sports.

„Ég veit ekki hvers þeir ætlast til af okkur. Eigum við að henda okkur niður eða eitthvað? Ég held að við séum ekki lið eða leikmenn sem gera það, en héðan í frá gætum við þurft þess.“

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅