Ráðherra ræddi Landsnetsdeilu án forstjóra

Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra ræddi ágreining Landsvirkjunar og Landsnets við stjórn Landsvirkjunar á fundi 6. janúar síðastliðinn, án þess að Hörður Arnarson, þáverandi forstjóri fyrirtækisins, væri viðstaddur. Ráðherra taldi óheppilegt að ágreiningur félaganna birtist í fjölmiðlum og tók stjórn Landsvirkjunar undir sjónarmið hans.

Þetta kemur fram í fundargerð fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem Morgunblaðið hefur undir höndum. Ríkisútvarpið fjallaði fyrst um málið í Speglinum kl. 18 í kvöld.

Stjórn Landsvirkjunar segir hins vegar í yfirlýsingu, sem send var fjölmiðlum um 20 mínútum eftir að frétt Ríkisútvarpsins fór í loftið, að forstjóri eða staðgengill hans hafi setið þá fundi með ráðuneytinu þar sem málefni tengd rekstri fyrirtækisins voru rædd.

Samkvæmt fundargerðinni frá 6. janúar var Hörður hvorki meðal fundarmanna né staðgengill hans. Auk ráðherra sátu fundinn fimm stjórnarmenn Landsvirkjunar og tveir starfsmenn ráðuneytisins.

Fundinum breytt að sögn Harðar

Upphaflega hafði verið gert ráð fyrir að Hörður sæti fund með ráðherra 7. janúar ásamt Brynju Baldursdóttur stjórnarformanni og Berglindi Ásgeirsdóttur varaformanni.

Þetta staðfesta tölvupóstsamskipti milli aðstoðarmanns Harðar og skrifstofu ráðherra frá 15. og 16. desember 2025.

Í bréfi sem Hörður sendi Daða Má 26. október síðastliðinn segir hann hins vegar að sér hafi verið tilkynnt 23. desember að ráðuneytið hefði óskað eftir breytingu á fyrirhuguðum fundi, að ósk fjármálaráðherra.

Hörður ætti ekki að mæta en þess í stað skyldi öll stjórnin sitja fundinn. Fundarefninu hefði jafnframt verið breytt.

Hörður segir að ákvörðun um að óska eftir fundinum hafi verið tekin á stjórnarfundi í nóvember 2025, að hans tillögu. Tilgangurinn hafi verið að ræða áhyggjur af breyttum samskiptum Landsvirkjunar og ráðuneytisins og þeim alvarlegu afleiðingum sem breytingarnar gætu haft fyrir fyrirtækið.

Í bréfinu segir Hörður einnig að stjórnin hafi síðan lagst gegn því að fundað yrði með ráðuneytinu um málið, þrátt fyrir ítrekaðar óskir hans.

Sjálf skilaboðin frá 23. desember um breytingu á fundinum eru ekki meðal fyrirliggjandi gagna.

Ráðherra vildi ekki ágreining í fjölmiðlum

Á fundinum 6. janúar var meðal annars rætt um hlutverk stjórnar, stjórnarhætti og upplýsingamiðlun milli Landsvirkjunar og ráðuneytisins. Ráðherra lagði áherslu á góð samskipti milli stjórnar og fulltrúa eiganda og rætt var um að formfesta upplýsingafundi.

Þá var sérstaklega fjallað um ágreining Landsvirkjunar og Landsnets.

Samkvæmt fundargerðinni taldi Daði Már óheppilegt að ágreiningur félaganna birtist í fjölmiðlum. Stjórnin tók undir það sjónarmið og upplýsti Brynja að virkt samtal væri milli fyrirtækjanna um þau ágreiningsmál sem væru uppi hverju sinni.

Einnig var rætt um skuldabréf sem Landsvirkjun á eftir sölu Landsnets. Skuldabréfið var sett í samhengi við arðgreiðslur en engin tillaga lögð fram.

Segja níu fundi hafa verið haldna

Í yfirlýsingu stjórnar Landsvirkjunar, sem barst klukkan 18.20 í dag eftir að RÚV hafði fjallað um málið klukkan 18, er fullyrt að samskipti fyrirtækisins við fjármála- og efnahagsráðuneytið séu á forræði stjórnar.

Frá því að stjórnin tók við í apríl 2025 hafi verið haldnir níu fundir með ráðuneytinu. Þar hafi einkum verið fjallað um arðsemi, arðgreiðslur, fjármagnsskipan og störf stjórnar.

Stjórnin segir þá fundi hafa verið í samræmi við skyldur ríkisfyrirtækja samkvæmt eigendastefnu ríkisins.

Þá hafnar stjórnin því að ríkið hafi haft óeðlileg áhrif á stjórnun Landsvirkjunar og segir ákvarðanir teknar á stjórnarfundum á viðskiptalegum forsendum.

Varaði við pólitískum afskiptum

Í minnisblaði sem Hörður lagði fyrir stjórn Landsvirkjunar 15. júní gagnrýndi hann aukin samskipti ráðuneytisins við stjórn fyrirtækisins utan aðalfunda.

Hann taldi hættu á að þau yrðu túlkuð sem pólitísk afskipti og gætu skapað fyrirtækinu lagalega áhættu, meðal annars vegna reglna um ríkisstyrki á Evrópska efnahagssvæðinu.

Þá gagnrýndi hann að ráðuneytið hefði að hans sögn átt frumkvæði að fundum með stjórn án þess að forstjóri fengi fundarboð og að þar virtust jafnvel vera rædd málefni sem heyrðu undir daglegan rekstur.

Í lögfræðiáliti Áslaugar Árnadóttur, sem stjórn Landsvirkjunar aflaði í kjölfarið, var hins vegar komist að þeirri niðurstöðu að stjórnarformanni væri heimilt að funda með fulltrúum eiganda og ákveða hvort forstjóri sæti slíka fundi. Hún áréttaði jafnframt mikilvægi þess að sjónarmið stjórnvalda hefðu ekki áhrif á sjálfstæða ákvarðanatöku stjórnarinnar.

Ráðherra fékk trúnaðarpóst

Þann 11. september funduðu Brynja og Berglind með starfsmönnum fjármála- og efnahagsráðuneytisins um ágreininginn við Hörð.

Í fundargerð segir að stjórn Landsvirkjunar hafi talið alvarlega stöðu komna upp í samstarfi sínu við forstjórann. Þá var rætt um nýja stefnumótun og hugsanlega rekstrarúttekt ráðuneytisins á starfsemi fyrirtækisins.

Síðdegis sama dag sendi sérfræðingur ráðuneytisins, trúnaðarpóst til Daða Más og fleiri starfsmanna ráðuneytisins undir efnislínunni „Landsvirkjun (viðkvæmt)“.

Þar rakti hann gagnrýni Harðar á stjórnina og samskipti hennar við ráðuneytið.

„Lítið traust virðist vera til staðar á báða bóga, sem gerir stjórn erfitt fyrir að sinna sínu starfi,“ skrifaði sérfræðingurinn.

Hann greindi jafnframt frá stefnumótunarvinnu stjórnar í samstarfi við Boston Consulting þar sem áhersla væri lögð á hagræðingu og aukna kostnaðarvitund.

Hörður sagði upp störfum í lok september, samkvæmt fundargerð ráðuneytisins frá 7. október. Þann dag upplýsti stjórn Landsvirkjunar ráðherra um aðdraganda afsagnarinnar og lögfræðiálit sem hún hafði aflað vegna gagnrýni Harðar.

Í yfirlýsingunni í dag segir stjórnin að hún hafi orðið við ósk Harðar um starfslok. Jafnframt hafnar hún því að hafa haft óeðlileg afskipti af daglegum rekstri Landsvirkjunar.

Gögnin sýna að ráðuneytið hafði fengið upplýsingar um alvarlegan ágreining innan Landsvirkjunar áður en Hörður lét af störfum. Hins vegar liggur ekki fyrir í þeim hvers vegna fyrirhuguðum fundi í janúar var breytt eða hvort ráðherra hafi sjálfur óskað eftir því að Hörður sæti hann ekki.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅