Hitnar enn hjá heitasta pari í heimi
Íþróttamaðurinn Tom Brady og ofurfyrirsætan Candice Swanepoel eru að stinga saman nefjum. Samsett mynd
NFL-leikmaðurinn fyrrverandi Tom Brady og ofurfyrirsætan Candice Swanepoel hafa verið að hittast í nokkra mánuði. Nú telur fólk að sambandið sé komið á næsta stig þar sem Swanepoel sást með dularfullan gullhring.
Brady og Swanepoel búa í Miami og því hefur verið auðvelt fyrir þau að rækta ástina að undanförnu. Þau hafa hins vegar verið dugleg að leyna sambandi og passað að segja fáum frá að því er fram kemur á vef People.
Þetta er ekki fyrsta Victoria's Secret-fyrirsætan sem Brady fellur fyrir en hann var kvæntur Gisele Bündchen. Hann á með henni tvö börn. Brady hefur einnig verið orðaður við ofurfyrirsætuna Irinu Shayk.
Tom Brady hefur verið að hitta marga frægar konur síðan hann skildi við eiginkonu sína árið 2022. AFP/ANGELA WEISS
Með dularfullan hring
Á dögunum sást Swanepoel með dularfullan gullhring á baugfingri að því er fram kemur á vef Page Six. Fyrirsætan var í hversdagslegum fötum með derhúfu þegar hún sást með hringinn en auk þess var hún með gullhring á litla fingri.
Heimildarmaður segir að ástarsambandið væri alvarlegt en hefði staðið yfir í marga mánuði.
„Tom hefur verið að hitta Candice og nýtur þess virkilega að verja tíma með henni,“ sagði heimildarmaður og sagði að Brady væri ekki að leita eftir alvarlegu sambandi. Benti hann jafnframt á að íþróttastjarnan hefði verið með nokkrum konum frá því að hann skildi við eiginkonu sína árið 2022. Virðist hann vera sáttur með lífið eins og það er núna.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

