Er þetta fallegasta kaka veraldar?
Lady M, kökufyrirtæki frá New York með verslanir meðal annars í Los Angeles, Hong Kong og Singapúr, fagnaði nýverið 25 ára afmæli með þessari litríku köku. Er þetta fallegasta kaka veraldar? Skjáskot Instagram
Þegar rætt er um kökur sem hafa sett svip sinn á kökumenningu New York kemur Lady M gjarnan við sögu. Fyrirtækið er þekkt fyrir Mille Crêpes-kökurnar sínar, þar sem örþunnum pönnukökum er raðað saman með mjúku kremi á milli. Nú fagnar það 25 ára afmæli með litríkri köku sem geymir óvænta samsetningu.
Afmæliskakan sameinar í fyrsta sinn tvær af einkenniskökum Lady M: köflótta svampköku og marglaga pönnukökutertu. Þegar sneið er skorin úr henni birtast því bæði köflótt mynstur og þunn pönnukökulög í regnbogans litum.
„Í ár vildum við fagna með köku sem endurspeglar hver við erum,“ segir Ken Romaniszyn, framkvæmdastjóri Lady M, í kynningu fyrirtækisins.
Pönnukökur í stað sykurskrauts
Skrautið vekur ekki síður athygli en mynstrið inni í kökunni. Í stað hefðbundins kökuskrauts úr sykri nota kökugerðarmenn Lady M handgerðar pönnukökur sem eru þurrkaðar og nýttar sem marglitar flögur.
Þau kalla skrautið „crêpefetti“, orðaleik með crêpes og confetti. Pönnukökurnar mynda þannig bæði lög inni í kökunni og litríkt regn á yfirborðinu.
Lady M var stofnað í New York árið 2001 og rekur nú kökuverslanir víða um heim. Í kökugerðinni mætast frönsk tækni og japönsk áhrif, með áherslu á fínleg lög og hóflega sætu. Í afmæliskökunni fær þessi nálgun litríkan veislubúning þar sem hver sneið sýnir handverkið að baki.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/89/1688954.jpg)