Óvenjulega krúttleg dýr heilla gesti

Dýragarður í Islamabad í Pakistan komst í heimsfréttirnar á dögunum fyrir nýtt aðdráttarafl. Multi Zoo, sem er í útjaðri höfuðborgar Pakistans, hefur flutt inn alpakadýr svo gestir á kaffihúsi garðsins geti notið drykkja og veitinga á meðan þeir dást að dýrunum.

Í hjörðinni eru tíu alpakadýr en þetta eru einu alpakadýrin í Pakistan. Alpakadýr eru suður-amerísk húsdýr af úlfaldaætt sem eru sérstaklega ræktuð vegna ullarinnar. 

„Þetta eru vetrardýr. Þegar þau komu hingað fyrst var sumar. Til að verja þau fyrir hitanum settum við upp loftkælitæki í kringum þau,“ sagði Muhammad Younas, framkvæmdastjóri dýragarðsins. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅