„Spilaði með pabba þínum í Liverpool“

Luis Suárez og Kai Johnson

Luis Suárez og Kai Johnson Ljósmynd/Instagram/Luis Suárez

Knattspyrnustjarnan Luis Suárez staldraði við til að heilsa Kobi Johnson, ungum knattspyrnumanni hjá Chelsea. Ástæðan er sú að Suárez lék með pabba hans hjá Liverpool.

Pabbi Kobis er Glen Johnson, sem lék á sínum tíma með Liverpool á sama tíma og Suárez.

Fundurinn átti sér stað á æfingasvæði Inter Miami í Fort Lauderdale, þar sem U14-lið Chelsea tekur þátt í Messi-bikarnum.

„Ég spilaði með pabba þínum, ég hef þekkt þig síðan þú varst lítill,“ sagði Suárez við Kobi áður en hann stillti sér upp á mynd með honum.

Kobi hefur verið hjá Chelsea frá því í U8-flokki. Faðir hans lék einnig með Lundúnaliðinu áður en hann varð síðar liðsfélagi Suárez hjá Liverpool.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅