Fögnuðu nýjum umbúðum með pompi og prakt
Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania, Edda Hermannsdóttir forstjóri Apótekarans, Lára Björg Björnsdóttir verkefnastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík og Birna Ósk Einarsdóttir forstjóri Húsasmiðjunnar. Ljósmynd/Anton Bjarni
Það voru allir í sínu fínasta pússi þegar Gamla apótekið bauð í teiti til að afhjúpa nýjar umbúðir. Teitið fór fram á Lyfjafræðisafni Íslands en þangað mættu í kringum 120 manneskjur með góða skapið í farteskinu.
Vörur Gamla apóteksins komu á markað 1953 og hafa allar götur síðan byggt á þekkingu og uppskriftum sem þróaðar hafa verið í samstarfi við lyfjafræðinga og lækna.
„Gamla apótekið hefur fylgt mörgum kynslóðum og skipað fastan sess á heimilum landsins. Það hefur verið einstaklega skemmtilegt að gefa umbúðunum nýja ásýnd, og ekki síst að heyra reynslusögur viðskiptavina sem tóku þátt í ferlinu. Við sóttum innblástur í gömlu, brúnu apótekin og nýja útlitið ber þess skýr merki. Á næstunni eru svo væntanlegar nýjar og spennandi vörur sem við hlökkum til að kynna fyrir viðskiptavinum okkar,“ segir Kári Einarsson, framleiðslustjóri Gamla apóteksins en fjórar vörulínur voru kynntar í nýju útliti. Brúna línan er fyrir líkamann, bláa fyrir fæturna, græna fyrir andlitið og gula fyrir börnin.
Aðalbjörg Eggertsdóttir, markaðs- og sölustjóri, rakti sögu Gamla apóteksins fyrir gestum, og Högni Högnason, framkvæmdastjóri Hér og nú, sagði frá breytingarferlinu sem stofan vann í samstarfi við starfsfólk Gamla apóteksins.
Gamla apótekið er hluti af Apótekaranum, sem gekk nýlega í gegnum umfangsmikla stefnumótun og endurmörkun þar sem fjögur vörumerki voru sameinuð í eitt.
Hulda Frímannsdóttir stefnu- og viðskiptaþróunarstjóri hjá Basalt og Sólveig Ása, framkvæmdastjóri Krafts. Ljósmynd/Anton Bjarni
Iða Brá, aðstoðarbankastjóri Arion, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, Edda Hermannsdóttir forstjóri Apótekarans, Signý Sif Sigurðardóttir sjóðstjóri og Ragnhildur Jónsdóttir hagfræðingur. Ljósmynd/Anton Bjarni
Anna Þorbjörg Jónsdóttir forstöðumaður viðskiptaþróunar og viðskiptatengsla hjá Alfa Framtaki og Ragnhildur Jónsdóttir hagfræðingur í góðum félagsskap. Ljósmynd/Anton Bjarni
Margrét Dagbjört Pétursdóttir markaðsstjóri Heilsu, Anna María Gísladóttir lögmaður og Karin Kristjana Hindborg eigandi Nola. Ljósmynd/Anton Bjarni
Kristjana Steingrímsdóttir eða Jana eins og hún er kölluð er hér fyrir miðri mynd. Ljósmynd/Anton Bjarni
Íris Borgþórsdóttir, Birgitta Haukdal, Edda Hermansdóttir og Ragnhildur Sveinsdóttir. Ljósmynd/Anton Bjarni
Fríður, mannauðs og gæðastjóri Apótekarans, og Markús Árnason, stjórnarformaður. Ljósmynd/Anton Bjarni
Helga Ólafsdóttir fatahönnuður, Rósa Gísladóttir doktor í sálfræðilegum málvísindum og Marta María Winkel fréttastjóri dægurmála mbl.is. Ljósmynd/Anton Bjarni
Bogga, Margrét Dagbjörg Pétursdóttir, Erna Hrund Hermannsdóttir og Karin Kristjana Hindborg. Ljósmynd/Anton Bjarni
Edda Hermannsdóttir og Birna Einarsdóttir stjórnarformaður Húðlæknastöðvarinnar. Ljósmynd/Anton Bjarni
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗






























