Í mál við sjónvarpsrisa og krefst milljóna
Dómur í máli danskra íþróttamanna gegn HBO Nordic verður kveðinn upp 15. desember, samkvæmt Hbold.
Á meðal íþróttamanna sem hafa farið í mál gegn HBO eru handboltastjörnurnar Mikkel Hansen og Mathias Gidsel, hjólreiðamaðurinn Mads Pedersen og badmintonleikarinn Viktor Axelsen.
„Ég hef verið notaður sem auglýsingaskilti,“ sagði Hansen þegar hann bar vitni fyrir rétti 26. október.
Hann krefst 200.000 danskra króna vegna mynda sem sagðar eru hafa verið notaðar án leyfis til að selja áskriftir að HBO Max á Ólympíuleikunum 2024.
HBO neitar að hafa brotið af sér og heldur því fram að notkunin hafi verið ritstjórnarleg og að samþykki hafi falist í skilmálum fyrir þátttöku í Ólympíuleikunum.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗