Stjórn Landsvirkjunar sendir frá sér yfirlýsingu

Brynja Baldursdóttir er stjórnarformaður Landsvirkjunar.

Stjórn Landsvirkjunar hafnar því að hafa farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt eða heimildir og segir ekkert hafa komið fram við yfirferð athugasemda Harðar Arnarsonar, fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins, sem bendi til annars.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu stjórnarinnar vegna áframhaldandi umræðu um starfslok Harðar og athugasemdir hans við stjórnarhætti fyrirtækisins. 

Hörður setti fram athugasemdir sínar í minnisblaði til stjórnar í júní síðastliðnum. Stjórnin segist hafa tekið þær alvarlega, farið yfir þau tilvik sem þar voru nefnd og aflað óháðs lögfræðiálits. Þá hafi hún einnig haft til hliðsjónar annað lögfræðiálit sem Hörður aflaði.

„Yfirferð málsins hefur ekki leitt í ljós að stjórn Landsvirkjunar hafi farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt eða heimildir,“ segir í yfirlýsingunni.

Stjórnin viðurkennir þó að ágreiningur hafi verið um vinnubrögð og túlkun á hlutverkum stjórnar, stjórnarformanns og forstjóra.

Fjallað var um minnisblöðin í Speglinum á Rás 1 nú klukkan 18 í kvöld.

Níu fundir með ráðuneytinu

Í yfirlýsingunni er sérstaklega fjallað um samskipti stjórnarinnar við fjármála- og efnahagsráðuneytið.

Frá því að núverandi stjórn tók við í apríl 2025 hafi verið haldnir níu fundir með ráðuneytinu og liggi fundargerðir þeirra fyrir. Þar hafi einkum verið rætt um arðsemi, arðgreiðslur, fjármagnsskipan og störf stjórnar.

Forstjóri eða staðgengill hans hafi setið þá fundi þar sem málefni tengd rekstri Landsvirkjunar voru rædd.

Stjórnin segir að ný vinnubrögð í samskiptum við ráðuneytið hafi í einhverjum tilvikum skapað núning milli stjórnar og forstjóra.

Hún hafnar því jafnframt að ríkið hafi haft óeðlileg áhrif á stjórnun fyrirtækisins og segir allar ákvarðanir stjórnar teknar á viðskiptalegum forsendum.

Fundaði fjórum sinnum án Harðar

Stjórnin hafnar því einnig að Herði hafi verið haldið frá umræðu um rekstur félagsins.

Á um eins og hálfs árs starfstíma stjórnarinnar hafi hún tvisvar fundað án hans þegar fjallað var um athugasemdir hans við störf hennar. Á tveimur öðrum fundum hafi Hörður vikið af fundi undir dagskrárliðum sem vörðuðu hann sjálfan.

Stjórnin telur eðlilegt að geta rætt eftirlit með störfum forstjóra án viðveru hans.

Þá segir stjórnin að hún hafi ekki skipt sér af daglegum rekstri Landsvirkjunar og að samskipti við starfsmenn eða utanaðkomandi aðila hafi verið með samráði og samþykki Harðar.

Að lokum áréttar stjórnin að hún hafi orðið við ósk Harðar um starfslok.

„Það er hins vegar ekki rétt að halda því fram að vikið hafi verið frá lögum eða góðum stjórnarháttum. Slíkar fullyrðingar samrýmast ekki gögnum málsins og því telur stjórnin rétt að leiðrétta þær,“ segir í yfirlýsingunni.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅