Á gjörgæslu eftir heilablóðfall
Pepe Mel, 63 ára fyrrverandi knattspyrnustjóri West Brom, er á gjörgæslu að jafna sig eftir að hafa fengið heilablóðfall.
Real Betis tilkynnti, að beiðni fjölskyldu hans, að Mel hefði gengist undir vel heppnaða aðgerð í gær. Hann dvelur enn á Virgen del Rocío-sjúkrahúsinu í Sevilla.
Spánverjinn stýrði West Brom í 17 leikjum árið 2014 og hélt félaginu í ensku úrvalsdeildinni áður en hann var látinn fara. Hann kom Betis einnig tvisvar upp í efstu deild.
Mel þjálfaði síðast marokkóska liðið IR Tanger en hætti þar fyrr á þessu ári.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/7/39/739357.jpg)