Bláa Lónið má kaupa Arctic Adventures

Bláa Lónið hefur fengið leyfi til að festa kaup á ferðaþjónusturisanum Arctic Adventures. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Bláa Lónsins á ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventures og verður Arctic Adventures því hluti af samstæðu Bláa Lónsins í lok nóvember.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bláa Lóninu.

Með samþykkinu var eina eftirstandandi fyrirvara í kaupsamningi félaganna aflétt og er því gert ráð fyrir að lokið verði við kaupin á næstu vikum.

Öllum fyrirvörum aflétt

Greint var frá kaupunum í júní 2026. Þá kom fram að þau væru háð fyrirvörum um áreiðanleikakönnun beggja félaga ásamt samþykki hluthafafunda og svo Samkeppniseftirlitsins, en fyrri tveimur fyrirvörunum hefur þegar verið aflétt.

Arctic Adventures er eitt af stærstu ferðaþjónustufyrirtækjum landsins og sérhæfir sig á sviði ævintýra- og afþreyingarferðaþjónustu á Íslandi og rekur meðal annars vinsæla áfangastaði á borð við Fjaðrárgljúfur, Kerið og Raufarhólshelli.

Tveir ferðaþjónusturisar

Samanlagðar tekjur félaganna á árinu 2025 voru um 34,3 milljarðar króna og samanlagður fjöldi stöðugilda um 1.120. Heildarfjöldi stöðugilda hjá Bláa lóninu er 780 og hjá Arctic Adventures 340.

„Það eru spennandi tímar framundan. Við förum inn í Bláa Lóns samstæðuna með öfluga starfsemi víða um land, mikla sérþekkingu, sterka sölu- og rekstrarmenningu og síðast en ekki síst framúrskarandi starfsfólk. Með því að sameina ólíka styrkleika fyrirtækjanna skapast ný tækifæri til að þróa þjónustu og upplifanir, ná til fleiri gesta og styrkja stöðu Íslands sem áfangastaðar,“ er haft eftir Ásgeiri Baldurs, forstjóra Arctic Adventures.

Bláa Lónið og Arctic Adventures í eina sæng.

Bláa Lónið og Arctic Adventures í eina sæng. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅