Hvað er til ráða þegar húðin og hárið fara í hakkabuff?

Húðin yfir vetrartímann er þurr og grá en þær Marta María Winkel og Edda Gunnlaugsdóttir ræddu málið í nýjasta þætti Dagmála. Marta María segir mikilvægast að hreinsa og nudda húðina vel í lok dags. 

„En hvað með húðina? Við erum aðeins búnar að vera að ræða hana, því þú varst að segja að húðin á þér væri eiginlega að skorpna í þessum kulda,“ segir Marta María. 

„Þetta er nefnilega svo erfitt þegar það verða miklar veður- og hitabreytingar. Þá fer bæði húðin og hárið bara í hakkabuff ef maður bregst ekki við.“

„Þetta er alveg hræðilegt! Nú er ég farin að tvíhreinsa húðina mína á hverju kvöldi. Ég er með frekar olíumikla húð en hún er samt alltaf mjög þurr og svolítið viðkvæm. Þess vegna er ég farin að nota mjög góðan og mildna hreinsi,“ segir Edda. 

„Ertu þá að nudda húðina vel?“ spyr Marta María. 

„Já, ég byrja á því að nota hreinsiolíu frá Talm og svo er ég að prófa hreinsi frá Bláa lóninu sem mér finnst reyndar alveg frábær,“ svarar Edda.

„Það sem maður á í rauninni að gera er að gefa sér góðan tíma í hreinsunina. Maður á að nudda húðina í um tvær mínútur, fara vel yfir andlitið og augnsvæðið, skola svo af og endurtaka leikinn. Það skiptir máli að gera þetta vel og gefa sér nægan tíma.“

Hér fyrir neðan er hægt að horfa á þáttinn í heild sinni. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅