„Er stuðningsmaður Liverpool og þetta er brandari“

Alexis Mac Allister í rifrildi í leiknum.

Alexis Mac Allister í rifrildi í leiknum. AFP/Darren Staples

Gary Neville og Jamie Carragher hafa kallað viðbrögð Alexis Mac Allister, leikmanns Liverpool, við samstuði við Noni Madueke vandræðaleg.

Mac Allister féll og greip um andlitið eftir lítilsháttar snertingu í 1:0-sigri Arsenal á Anfield í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær.

„Ég er himinlifandi yfir því að honum hafi ekki verið vikið af velli þarna,“ sagði Carragher í myndveri Sky Sports eftir leikinn.

„Þessu verður að hætta. Þetta er fáránlegt. Ég þoli þetta ekki. Ég er stuðningsmaður Liverpool og þetta er brandari,“ bætti hann við.

Arsenal fór á topp ensku úrvalsdeildarinnar með marki Kai Havertz í fyrri hálfleik og vann þar með sinn fyrsta sigur á Anfield í 14 ár.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅