Skelfileg dómaramistök

Gary Neville, sparkspekingur Sky Sports, var allt annað en sáttur við ákvörðun dómarateymisins í stórleik Arsenal og Manchester City í ensku úrv…

Leikmenn Manchester City voru allt annað en sáttir í leikslok.

Leikmenn Manchester City voru allt annað en sáttir í leikslok. AFP/Ben Stansall

Gary Neville, sparkspekingur Sky Sports, var allt annað en sáttur við ákvörðun dómarateymisins í stórleik Arsenal og Manchester City í dag.

Neville taldi að City hefði átt að fá vítaspyrnu í uppbótartíma þegar boltinn fór í hönd Viktors Gyökeres og gagnrýndi VAR-dómarann harðlega fyrir að grípa ekki inn í.

„Þetta eru skelfileg mistök. Skoðið hendurnar á Gyökeres. Þetta er klár vítaspyrna. Hendurnar eru ekki í eðlilegri stöðu,“ sagði Neville.

Hann taldi að Gyökeres hefði notað hendurnar til að stöðva boltann og að VAR hefði átt að kalla dómarann að skjánum.

„Hendurnar á honum eru eins og hjá markverði. Þær eru þarna til að stöðva boltann. Af hverju eru þær svona hátt uppi? Því lengur sem hann skoðar atvikið, því meira virðist hann sannfæra sjálfan sig um að þetta sé ekki víti,“ sagði Neville.

Hann gagnrýndi jafnframt rökstuðning VAR-dómarans, sem taldi hendur Gyökeres hafa verið í eðlilegri stöðu.

„Þetta var frábær leikur en það er einfaldlega rangt að segja að hendurnar hafi verið í eðlilegri stöðu. Hann vildi greinilega bara halda jafnteflinu. Ákvörðunin var einfaldlega of stór fyrir hann,“ sagði Neville.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读