Fögnuðu með forsetanum

„Við vorum að fagna því að við værum komin í þetta frábæra hús,“ segir Ásta Sól.

Sigurjón Pálmi Rúnarsson og Halla.

„Við vorum að fagna því að við værum komin í þetta frábæra hús, Mannréttindahúsið, þar sem við erum í góðum félagsskap fjölda samtaka sem berjast fyrir mannréttindum,“ segir Ásta Sól Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar, en á fimmtudaginn var fyrsti viðburður félagsins haldinn í nýja húsnæðinu.

Einnig var því fagnað að til stendur að skrifa undir tveggja ára þjónustusamning við dómsmálaráðuneytið.

„Við höfðum leitað til Höllu forseta sem sagðist strax vilja kynna sér okkar fallega en viðkvæma starf og þetta var virkilega falleg og kærleiksrík stund.“

Ásta Sól segir að samtökin veiti stuðning fyrir fjölskyldur. „Það er bæði í upphafi ferilsins, en einnig er mikið ákall eftir stuðningi eftir að heim er komið.“

Elísabet Hrund Salvarsdóttir, formaður Íslenskrar ættleiðingar, og dóttir hennar Aneta Ösp Smáradóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjöldi fólks mætti til að hlýða á erindin, fagna nýju húsnæði og samningi við ráðuneytið og auðvitað gæða sér á vöfflum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jasmína, Þorsteinn, Bjarney og Gabríela.

Halla faðmar Sigurjón Pálma Rúnarsson að sér á samkomunni.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读