Man City rændir sigrinum í Lundúnum

Það var sannkallaður stórleikur í ensku úrvalsdeildinni þegar Arsenal tók á móti Manchester City í 12. umferð deildarinnar og enduðu leikar 2:2 …

Iliman Ndiaye kantmaður City og Riccardo Calafiori bakvörður Arsenal eigast við í dag. AFP/Ben Stansall

Það var sannkallaður stórleikur í ensku úrvalsdeildinni þegar Arsenal tók á móti Manchester City í 12. umferð deildarinnar og enduðu leikar 2:2 þar sem leikmenn City voru rændir sigrinum.

Arsenal er því áfram með sex stiga forskot á toppi deildarinnar en Manchester City er í öðru sætinu.

Arsenal byrjaði leikinn aðeins betur og ógnaði meira fyrstu mínúturnar. Mikið var um brot í fyrri hálfleik og þurfti John Brooks dómari leiksins að veifa gula spjaldinu samtals sex sinnum ef með er talið gula spjaldið sem Mikel Arteta stjóri Arsenal fékk.

Fyrsta mark leiksins kom á 34. mínútu leiksins og var þar á ferðinni enginn annar en Erling Braut Haaland eftir frábæran undirbúning Josko Gvardiol sem klobbaði leikmann Arsenal áður en hann gaf á markaskorarann mikla. Haaland afgreiddi boltann með hægri fæti í bláhornið hægra megin og staðan var 1:0 fyrir Manchester City.

Leikmenn Arsenal jöfnuðu leikinn á 40. mínútu. Þar var að verki enginn annar en Kai Havertz. Christos Tzolis gaf háa sendingu inn í vítateig Manchester City. Þar var Mikel Merino sem skallaði boltann út í teiginn til Kai Havertz sem skallaði boltann í netið og staðan var jöfn, 1:1.

Staðan í hálfleik á Emirates-leikvanginum í London var 1:1 í stórleik helgarinnar.

Seinni hálfleikurinn hófst með látum. Á 48. mínútu vann hinn 19 ára gamli Ayyoub Bouaddi boltann við miðjuna. Hann keyrði upp kantinn, stakk boltanum á Enzo Fernandez sem potaði boltanum undir David Raya í marki Arsenal og staðan var orðin 2:1 fyrir gestina frá Manchester.

Arsenal gerði þrefalda skiptingu í kjölfarið og hóf Lundúnaliðið að sækja mun meira. Fengu þeir nokkur mjög álitleg færi sem hefðu hæglega getað endað í markinu.

Á 83. mínútu skoraði Arsenal afar umdeilt mark. Lundúnaliðið tók hornspyrnu sem rataði í mjöðmina á Jurrien Timber og þaðan í markið. Í aðdragandanum setti Gabriel olnbogann í Gianluigi Donnarumma markvörð City sem náði þar af leiðandi ekki til boltans.

Eftir að VAR hafði skoðað atvikið var markið látið standa sem er ótrúleg niðurstaða að mati undirritaðs. Staðan var því 2:2 sem voru lokatölur leiksins.

Í blálok leiksins átti City að fá vítaspyrnu þegar skalli Jasoko Gvardiol hafnaði í höndum Viktor Gyökeres en VAR komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri um vítaspyrnu að ræða. Önnur ótrúleg niðurstaða úr VAR herberginu í þessum leik. 

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读