Múslimar verða orðnir fleiri en kristnir 2035
Reiknað er með að árið 2035 verði múslimar á heimsvísu orðnir fleiri en þeir sem eru kristinnar trúar.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá The Pew Research Center rannsóknarmiðstöðinni sem hefur síðustu 25 árin gefið út árlega skýrslu um hversu margir aðhyllast helstu trúarbrögð heims. Sky News skýrir frá þessu.
Rannsóknarmiðstöðin spáir því einnig að árið 2070 verði fólk utan trúfélaga stærsti þjóðfélagshópurinn í Bretlandi eða 52,3%. Kristnir verða þá 25,4% og múslimar 16%.
Reiknað er með að bæði kristnu fólki og múslimum fjölgi á heimsvísu en múslimum fjölgar miklu hraðar og er aðalástæðan fyrir því að múslimar eiga oft fleiri börn en fólk sem tilheyrir öðrum stórum trúarbrögðum.
Frá 2020 til 2025 var fæðingartíðnin hjá múslimum 3,1 barn á hverja konu en hjá kristnum var hún 2,5 börn á hverja konu. Fæðingartíðnin þarf að vera 2,1 barn á konu ef kynslóðin vill tryggja að næsta kynslóð verði ekki fámennari.
Pew spáir því að árið 2035 verði múslimar orðnir 2,57 milljarðar en kristnir verði 2,52 milljarðar. Ef nýleg þróun heldur áfram verða múslimar orðnir rúmlega 3,6 milljarðar árið 2070 og kristnir tæplega 3 milljarðar.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗