Neuer hættir eftir tímabilið
Manuel Neuer tilkynnti í dag að þetta tímabil væri hans síðasta en sigursæli þýski markmaðurinn er 40 ára gamall.
Manuel Neuer tilkynnti í dag að þetta tímabil væri hans síðasta en sigursæli þýski markmaðurinn er 40 ára gamall.
Samningur hans við þýska stórveldið Bayern Munchen rennur út eftir sumarið en hann hefur verið þar síðan 2011 og er fyrirliði liðsins. Hann hefur verið að glíma við meiðsli undanfarið en kemur líklegast til baka í janúar á næsta ári.
„Ég geri ekki ráð fyrir því að halda áfram eftir sumarið. Ég er að reyna að njóta mín núna,“ sagði hann við Sky Sports í Þýskalandi.
„Ég var 85% tilbúinn að hætta eftir síðasta tímabil.“
Neuer varð heimsmeistari með Þýskalandi 2015, hefur 13 sinnum verið þýskur meistari, unnið Meistaradeild Evrópu í tvígang og sjö sinnum verið þýskur bikarmeistari, þar af einu sinni með Schalke.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗