Yfirleitt reiðubúnir að vinna með lögreglu
„Þessir miðlar eru yfirleitt mjög reiðubúnir að vinna með lögreglu ef við erum að horfa á kynferðisbrot gegn börnum, sérstaklega þann málaflokk,…
Helmingur íslenskra netnotenda neytir lýðnetsins um síma sína og margir nota einnig dulkóðaða samskiptamiðla og „misjafn tilgangurinn sem fyrir þeim vakir“, eins og Tómas Guðmundsson orti í kvæði sínu um Hótel Jörð. AFP
„Þessir miðlar eru yfirleitt mjög reiðubúnir að vinna með lögreglu ef við erum að horfa á kynferðisbrot gegn börnum, sérstaklega þann málaflokk, en það sama á líka við um hryðjuverkaógn, þar fáum við yfirleitt mjög góða og hraða svörun, í öllu sem snýr að lífi fólks.“
Svo mælir Finnbogi Jónasson, aðstoðaryfirlögregluþjónn og deildarstjóri greiningardeildar ríkislögreglustjóra, í samtali við Morgunblaðið um íslenska og erlenda undirheima, hér gripið niður í kafla viðtalsins um dulkóðaða samskiptamiðla lýðnetsins sem verða æ verri viðureignar.
EncroChat-málið 2020
Frægt varð þegar franska lögreglan réð dulkóðun EncroChat-dulsímakerfisins í Evrópu sumarið 2020 og gríðarstórar blokkir brotamanna í skipulagðri glæpastarfsemi féllu eins og spilaborg, lögregla handtók hátt í 3.000 manns á nokkrum dögum og lagði hald á tugi tonna af fíkniefnum og milljarða í reiðufé á íslensku gengi.
En markatilvikin eru mörg, „hvað ef þú ert með fyrirtæki í Bandaríkjunum og lögregla á Íslandi brýst inn í samtal hjá þér á Signal?“ spyr Finnbogi.
Lestu viðtalið í heild sinni:
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗