Sarah og Arna Sif aðstoða Aðalstein Jóhann

Knattspyrnudeild Þórs hefur gengið frá ráðningu tveggja aðstoðarþjálfara. Þær munu mynda sterkt teymi með Aðalsteini Jóhanni (Alla Jóa) í meistaraflokki kvenna á næsta tímabili.

Sarah Elnicky þjálfaði Völsung undanfarin þrjú ár. Fyrstu tvö árin þjálfaði hún með Alla Jóa, svo þau þekkjast vel.

Auk þess að vera aðstoðarþjálfari meistaraflokks mun Sarah gegna gríðarlega mikilvægu í barna- og unglingastarfi félagsins þar sem hún verður með umsjón yfir þjálfarateymi 2. og 3.flokks auk þess að koma að þjálfun í yngstu flokkum. Hún verður þannig lykilmanneskja í að brúa bilið milli yngri flokka og meistaraflokks.

Sarah er um þessar mundir hluti af þjálfarateymi Taívan og kemur til starfa 6. desember.

Arna Sif tekur að sér nýtt hlutverk. Hún verður áfram leikmaður liðsins en jafnframt aðstoðarþjálfari. 

Þá mun Sigurbjörn Bjarnason halda áfram að sjá um styrktarþjálfun meistaraflokks kvenna en hann hefur verið styrktarþjálfari liðsins undanfarin ár.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读