Mourinho brjálaður út í dómarann

Spænska stórliðið Real Madrid tapaði fyrsta leiknum á heimavelli á tímabilinu þegar liðið tapaði 2:1 fyrir Alaves í gærkvöldi.

Jose Mourinho.

Jose Mourinho. AFP/Oscar DEL POZO

Spænska stórliðið Real Madrid tapaði fyrsta leiknum á heimavelli á tímabilinu þegar liðið tapaði 2:1 fyrir Deportivo Alaves í gærkvöldi.

Mourinho hrósaði Quique Sanchez Flore, stjóra Alavés, fyrir nálgun hans á leikinn en hafði ekki jafn fallega hluti að segja um dómara leiksins, Soto Grado.

Jude Bellingham fékk tvö gul spjöld í leiknum og þar með rautt en fyrra spjaldið fékk hann fyrir kjaftbrúk og það seinna fyrir dýfu inni í vítateig.

„Þessi dómari rak Mbappe af velli fyrir tveimur tímabilum, Vinicius á síðasta tímabili og nú Bellingham. Sjáum til hvort röðin komi ekki að Courtois á næsta tímabili. Mér sýnist þessi dómari hafa gaman af því að sýna vald sitt, að sýna fram á að hann sé eitthvert undraverk,“ sagði Mourinho eftir leikinn í viðtali við AS.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读