Carrick: Þið gætuð haldið að ég væri galinn
Michael Carrick hefur ekki áhyggjur af starfi sínu sem knattspyrnustjóri karlaliðs Manchester United.
United mátti þola tap fyrir Chelsea, 2:0, í ensku úrvalsdeildinni um helgina og situr í 17. sæti deildarinnar með einungis sjö stig og er ekki í fallsæti vegna markatölu.
Vaxandi óvissa ríkir um framtíð Carrick vegna slaks árangurs liðsins og hefur pressan á stjórann aukist. United mætir Roma á Old Trafford í Meistaradeild Evrópu annað kvöld en aðeins tveir leikir eru eftir áður en gert verður hlé á keppni vegna landsleikja.
Maður veit ekki hvað gerist
Aðspurður hvort honum fyndist hann vera knattspyrnustjóri sem ætti aðeins tvo leiki eftir í starfi svaraði Carrick:
„Nei, alls ekki. Maður getur ekki horft of langt fram í tímann. Maður veit aldrei hvað gerist og ég veit ekki hvað gerist.
Það breytir engu um hvernig mér líður eða hvernig við undirbúum okkur fyrir leikinn á morgun. Ég hlakka virkilega mikið til hans og get varla beðið eftir að flautað verði til leiks,“ sagði Carrick á blaðamannafundi í dag.
Hann hélt áfram:
„Þið gætuð haldið að ég væri galinn miðað við úrslitin okkar og það sem hefur verið í gangi, en ég hlakka í alvöru mikið til leiksins á morgun. Það er það eina sem ég einbeiti mér að.
Hvað sem gerist eftir það gerist, í hvaða átt sem hlutirnir kunna að fara. En við viljum fyrst og fremst gera kvöldið á morgun að eftirminnilegu kvöldi.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗