Einmanalegt að vakna ein á sunnudegi
Hvernig finnst þér að vakna ein á sunnudegi?
Leikkonan Berta Sigríðardóttir skrifar um reimleika í Reykjavík og menn sem láta sig hverfa í nýjum pistli á Smartlandi.
Það er ekkert að því að vera einhleyp. Það er ekkert sárt við að þurfa ekki að taka tillit til einhvers annars þegar maður verslar í matinn eða velur sængurföt. Það er ekkert einmanalegt við að geta gert helgarplan eða skotist í bæinn með stelpunum án fyrirvara, án þess að spyrja kóng né prest um leyfi eða þurfa að láta vita.
Hins vegar er eitthvað einmanalegt við að vakna ein á sunnudegi. Sunnudagar eru fyrir pör. Sunnudagar eru ætlaðir ástföngnum pörum í Ikea að skoða fataskápa og náttborð og láta sig dreyma um framtíð fulla af ást og hamingju, án sársauka eða einmanaleika. Sunnudagar eru dagar sem einhleypt fólk þolir ekki.
Djammið er búið, allir í kringum mann eru með kæró hér eða barnaafmæli þar. Sunnudagar eru dagarnir sem við sitjum og óskum þess að vera eitthvað fyrir einhverjum.
„Hot girl summer“ er búið og eftir sit ég með gamla rútínu, sprungið dekk og húsnæðislán. Já, þetta er alvöru hryllingsmynd! Ég er ekki mikil pumpkin spice latte-skvísa, en október byrjar með alvöru draugagangi.
Ég hélt að ég væri ekki að fara að lenda í því, 28 ára gömul, að menn létu sig hverfa, en viti menn, það gerist svo sannarlega! Draugar eru til.
Reimleiki hrellir Reykjavík og á bak við hvert horn og hvert stefnumót getur staðið draugur, tilbúinn að hvísla að þér tómum loforðum og láta sig svo hverfa. Rómantískir draugar vita nákvæmlega hvað þú vilt heyra og skáldskapur er alltaf mun meira heillandi en kaldur raunveruleikinn. Skáldskapur er veikleikinn minn. Allt sem er of gott til að vera satt. Kannski er það þess vegna sem við segjumst vera skotin þegar við verðum ástfangin. Eftir sit ég með opið sár, tilbúin að láta skjóta mig aftur.
Það skemmtilega við Ísland er að við erum ekki mörg. Draugarnir eru því sjaldnast ókunnugir. Þetta eru afturgöngur sem rísa frá dauðum um miðja laugardagsnótt og senda misvelkomin skilaboð á Instagram. Sumir draugar þurfa ekki einu sinni að kynnast þér aftur. Þeir eru enn að horfa á story hjá þér á Insta.
Það eru árstíðaskipti, sem þýðir að nú fyllist bærinn af nýjum pörum og nýlega einhleypum einstaklingum úr samböndum sem rétt svo lifðu af sumarið, aðeins til þess að deyja í haustlægðinni og koma aftur á markað í tæka tíð fyrir útsölurnar. Á meðan stöndum við, hin endalaust einhleypu, sem virðumst aldrei komast almennilega úr sporunum og vitum nákvæmlega hver er kominn til að vera og hver hverfur aftur inn í heim Ikea á sunnudögum og fjölskylduboða hjá tengdó.
Þegar veturinn tekur við af haustinu er veðrið farið að minna helst á örsamband við nýlega einhleypan Íslending. Dásamleg vetrarkyrrð eina stundina, en appelsínugul veðurviðvörun, grenjandi rigning og 30 metrar á sekúndu þá næstu. En þegar norðurljósin dansa á himninum og stjörnurnar glitra á kaldri vetrarnóttu er auðvelt að sannfærast um að gefa þessu öllu annað tækifæri.
Því ef ég geri það ekki, hver á þá að sjá um að koma með nýjar og skemmtilegar sögur af tilhugalífinu í vinkonuhittingana?
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/60/1696047.jpg)