Ekkert næsta herbergi til að fara í fýlu

„Allt í einu að fara að vera alltaf saman, allan sólarhringinn. Ég held að þetta myndi ekki ganga hjá öllum,“ segir Róbert.

Það er ekki hlaupið að því að fara í næsta herbergi þegar upp kemur ágreiningur á heimilinu hjá Guðnýju Matthíasdóttur og Róberti Hallbergssyni, sem hafa búið í húsbíl síðastliðin fjögur ár ásamt tveimur barna sinna og ferðast víða um Evrópu.

Þau segja lífsstílinn ekki endilega henta öllum enda séu þau nánast öllum stundum saman. Þau voru gestir í Dagmálum í síðustu viku.

„Þú þarft alveg að vera pottþétt á því að makinn eða manneskjan sem þú ert með sé besti vinurinn,“ segir Guðný.

Þau nýti gjarnan bílferðirnar til að ræða þau mál sem upp koma en þau hafa einnig unnið mikið saman í gegnum tíðina og eru því vön samverunni.

„Allt í einu að fara að vera alltaf saman, allan sólarhringinn. Ég held að þetta myndi ekki ganga hjá öllum,“ segir Róbert.

Leitað til sonarins við skipulagningu

Skólaganga sonar þeirra hefur verið með óhefðbundnum hætti en hjónin hafa sjálf séð um kennsluna og nýtt ferðalagið til að fræða hann.

„Hann er með ofboðslega þekkingu á landafræði og sögu og slær okkur öll út,“ segir Guðný og bætir við að hún leiti gjarnan til sonar síns þegar kemur að því að skipuleggja akstursleiðir.

„Þetta er ekkert sem þú lærir bara í gegnum tölvuna eða í gegnum bækur,“ segir Róbert.

Vinirnir hafa ekki skilning á skorti á rafmagni

Þá hefur lífið í húsbílnum kennt drengnum að taka hversdagslegum þægindum ekki sem sjálfsögðum hlut. Vinir hans eigi stundum erfitt með að skilja hvers vegna hann geti ekki verið í tölvunni vegna rafmagnsskorts eða þurfi að aðstoða föður sinn við að fylla vatnstank bílsins.

Guðný bendir á að flestir þurfi ekki að velta fyrir sér hvort nóg sé til af vatni eða rafmagni á heimilinu. Öðru máli gegni um fjölskylduna í húsbílnum.

Róbert segir lífsstílinn þannig einnig hafa ýtt undir sjálfsbjargarviðleitni sonarins.

Sjáðu þáttinn í heild sinni: 

Ferðalagið hefur kennt syninum sjálfsbjargarviðleitni.

Ferðalagið hefur kennt syninum sjálfsbjargarviðleitni. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Helstu fréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读