Ingólfur Ægisson Norðdahl á tímamótum
Ingólfur Ægisson Norðdahl er hættur að vinna sem markaðs- og dagskrársérfræðingur hjá Símanum og hefur ráðið sig sem vörumerkjastjóra hjá Ölgerðinni.
„Eftir 15 ár er komið að kveðjustund hjá Símanum en í vikunni kláraði ég minn síðasta vinnudag,“ segir Ingólfur í færslu á LinkedIn.
Hann segist hafa lært margt hjá Símanum og segist hafa fengið tækifæri til að þroskast í starfi og eignast vini fyrir lífstíð.
„Ég er mjög spenntur fyrir því sem koma skal en á mánudaginn hefst nýtt ævintýri þegar ég keyri niður á Grjótháls og tek við starfi vörumerkjastjóra hjá Ölgerðinni Egill Skallagrímsson. Þar eru metnaður og sigurvilji ríkjandi og hlakka ég til að takast á við nýjar áskoranir í nýjum geira og að læra af metnaðarfullu fólki Ölgerðarinnar. Ég kveð Símann með miklu þakklæti, takk fyrir allt,“ segir hann.
Smartland óskar Ingólfi góðs gengis!
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
