Royalistar munu elska þessa!

Anna Marín hefur bakað frá barnæsku og gerir einstaklega fallegar kökur þar sem framsetningin fær að njóta sín. Ljósmynd/Aðsend

Royalistar og aðrir fagurkerar kunna að meta konunglegar veitingar og fallega lagt borð. Þetta glæsilega hindberjatart eftir Önnu Marín Bentsdóttur myndi sóma sér vel á slíku veisluborði, hvort sem tilefnið er hátíðlegt síðdegiskaffi eða eftirréttur í góðra vina hópi.

Hér mætast smjörbakaður tartbotn, möndlukrem, hindberjasulta og mjúkur vanillurjómi með ferskum hindberjum sem setja fallegan svip á kökuna.

Anna Marín hefur bakað frá barnæsku og gerir einstaklega fallegar kökur þar sem framsetningin fær að njóta sín. Lesendur muna ef til vill eftir guðdómlega súkkulaðitartinu sem hún kenndi okkur að gera í fyrra. Nú eru hindberin í aðalhlutverki.

Tartið er sett saman í nokkrum áföngum og gefur tilefni til að njóta þess að vanda til verka. Að lokum er hindberjunum raðað meðfram kantinum og vanillurjómanum sprautað í litla toppa í miðjunni. Útkoman er glæsilegur endapunktur á góðri máltíð.

Hindberja tart

Tartbotn

  • 100 g smjör
  • 50 g flórsykur
  • 1 eggjahvíta
  • 1/4 tsk. salt
  • 1/4 tsk. vanilludropar
  • 140 g hveiti
  • 1 msk. möndlumjöl

Aðferð

  1. Í hrærivél setjið smjör, egg, salt, vanilludropa og sykurinn og þeytið saman.
  2. Bætið síðan við hveitinu og möndlumjölinu og hrærið þar til allt hefur komið saman.
  3. Takið deigið og setjið það á milli tveggja laga af bökunarpappír og fletjið það svo jafnt út.
  4. Takið svo annan pappírinn í burtu og leggið deigið ofan í formið.
  5. Losið síðan hinn pappírinn í burtu og þrýstið deiginu út í alla kanta og upp hliðarnar á forminu.
  6. Ef það eru einhver göt í deiginu er gott að taka deigið sem hangir af köntunum og fylla í öll götin. Rúllið svo yfir kantana með kökukefli til að taka í burtu aukadeigið.
  7. Setjið deigið í frysti í 20 mínútur.
  8. Hitið ofninn á 180 °C. Takið tart-botninn úr frystinum og krumpið smá bökunarpappír sem er nógu stór til að passa í formið. Leggið pappírinn í tart-skelina og hellið bökunarbaunum í pappírinn (það er líka hægt að nota þurrkaðar baunir eða hrísgrjón). Bakið síðan í 10–15 mín. Takið síðan pappírinn og baunirnar varlega úr tart-skelinni og leyfið að kólna.
  9. Á meðan tartbotninn kólnar er gott að gera möndlukremið.

Möndlukrem

  • 125 g smjör
  • 96 g sykur
  • 125 g möndlumjöl
  • 1 egg
  • 1 eggjarauða
  • 1 tsk. vanilludropar

Aðferð

  1. Setjið allt saman í matvinnsluvél þar til allt hefur blandast vel saman.
  2. Færið yfir í sprautupoka og sprautið fyllingunni í tartskelina upp hálfa leið.
  3. Bakið á 180 °C í 15–25 mín.
  4. Takið síðan út og látið kólna.
  5. Þegar skelin hefur kólnað er gott að taka hana varlega úr forminu. 

Hindberjasulta

  • 250 g hindber
  • 150 g sykur smá sítrónusafi

Aðferð

  1. Allt sett í pott og látið malla við vægan hita í 7–10 mínútur. Hrærið stöðugt.
  2. Færið yfir í annað ílát og leyfið að kólna í u.þ.b. 30 mín.
  3. Hellið síðan sultunni ofan á tartið og dreifið vel. Kælið síðan í 30 mín.

Vanillurjómi

  • 125 g mjólk
  • Vanilla
  • 7 g maísmjöl
  • 20 g sykur
  • 27 g eggjarauður
  • 10 g smjör
  • 200 g þeyttur rjómi

Aðferð

  1. Hrærið eggjarauður, sykur og maísmjöl með písk þar til blandan léttist í u.þ.b. 3 mínútur.
  2. Hitið mjólk og vanillu saman í miðlungs potti þar til hann rétt svo síður.
  3. Hellið rjómanum út í eggjarauðurnar í smáum skömmtum og hrærið stöðugt svo að eggin eldist ekki.
  4. Hellið síðan blöndunni aftur yfir í pottinn og hrærið þar til blandan þykknar í u.þ.b. 3-5 mínútur.
  5. Takið síðan af hellunni og hellið í gegnum sigti ofan í skál, setjið smjörið síðan ofan í og hrærið þar til smjörið hefur bráðnað.
  6. Leggið plastfilmu á yfirborðið og kælið í ísskáp í 3–4 klukkustundir.
  7. Þeytið rjómann þar til hann er frekar stífur og blandið varlega við eggjablönduna með sleikju.
  8. Færið rjómann yfir í sprautupoka með hringlaga stút og setjið til hliðar.

Samsetning

  1. Skerið hindber í helminga og raðið meðfram kantinum.
  2. Sprautið rjómanum í miðjuna í litla toppa.
  3. Kælið inni í ísskáp í 30 mín. og njótið!

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅