Ingólfur Ægisson Norðdahl á tímamótum

Ingólfur Ægisson Norðdahl er farinn að vinna í Ölgerðinni eftir 15 ár hjá Símanum. Samsett mynd

Ingólfur Ægisson Norðdahl er hættur að vinna sem markaðs- og dagskrársérfræðingur hjá Símanum og hefur ráðið sig sem vörumerkjastjóra hjá Ölgerðinni.

„Eftir 15 ár er komið að kveðjustund hjá Símanum en í vikunni kláraði ég minn síðasta vinnudag,“ segir Ingólfur í færslu á LinkedIn. 

Hann segist hafa lært margt hjá Símanum og segist hafa fengið tækifæri til að þroskast í starfi og eignast vini fyrir lífstíð. 

„Ég er mjög spenntur fyrir því sem koma skal en á mánudaginn hefst nýtt ævintýri þegar ég keyri niður á Grjótháls og tek við starfi vörumerkjastjóra hjá Ölgerðinni Egill Skallagrímsson. Þar eru metnaður og sigurvilji ríkjandi og hlakka ég til að takast á við nýjar áskoranir í nýjum geira og að læra af metnaðarfullu fólki Ölgerðarinnar. Ég kveð Símann með miklu þakklæti, takk fyrir allt,“ segir hann. 

Smartland óskar Ingólfi góðs gengis! 

Ingólfur er orðinn vörumerkjastjóri í Ölgerðinni.

Ingólfur er orðinn vörumerkjastjóri í Ölgerðinni. mbl.is/Karitas

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅