„Hann er langbesti miðjumaður deildarinnar“

Declan Rice hefur spilað frábærlega með Arsenal.

Declan Rice hefur spilað frábærlega með Arsenal. AFP/Filippo Monteforte

Jamie Carragher, fyrrverandi leikmaður Liverpool og sparkspekingur hjá Sky Sports, telur Declan Rice, leikmann Englandsmeistara Arsenal, vera langbesta miðjumann ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

Rice átti frábæran leik og lagði upp sigurmarkið þegar Arsenal vann 1:0-útisigur á Liverpool á Anfield í gær.

Rice hefur verið meðal bestu leikmanna deildarinnar undanfarin ár og að mati Carraghers er engin spurning um hver standi upp úr á miðjunni.

„Hann er langbesti miðjumaður deildarinnar, það er ekki spurning. Hann er heimsklassa miðjumaður og einn sá besti í sögu Arsenal,“ sagði Carragher í uppgjörsþætti Sky Sports.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅