„Hann er langbesti miðjumaður deildarinnar“
Jamie Carragher, fyrrverandi leikmaður Liverpool og sparkspekingur hjá Sky Sports, telur Declan Rice, leikmann Englandsmeistara Arsenal, vera langbesta miðjumann ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.
Rice átti frábæran leik og lagði upp sigurmarkið þegar Arsenal vann 1:0-útisigur á Liverpool á Anfield í gær.
Rice hefur verið meðal bestu leikmanna deildarinnar undanfarin ár og að mati Carraghers er engin spurning um hver standi upp úr á miðjunni.
„Hann er langbesti miðjumaður deildarinnar, það er ekki spurning. Hann er heimsklassa miðjumaður og einn sá besti í sögu Arsenal,“ sagði Carragher í uppgjörsþætti Sky Sports.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗