ON og Thor semja um aukna raforku

Inni í seiðaeldisstöð Thors í Þorlákshöfn. Hjálmar Helgi Rögnvaldsson, forstöðumaður Viðskiptaþróunar og orkumiðlunar ON, Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri ON, Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri ON, Steinþór Pálsson, forstjóri Thor landeldis og Þorlákur Ómar Guðjónsson fjármálastjóri Thor landeldis Ljósmynd/ON

Orka náttúrunnar (ON) og Thor landeldi í Ölfusi hafa komið sér saman um aukningu á samningsbundinni raforku til eldisins úr 5 MW í 10 MW. Þá hefur verið undirrituð viljayfirlýsing um frekari raforku til framtíðar.

Í tilkynningu ON kemur fram að Thor landeldi vinni að uppbyggingu landeldisstöðvar fyrir lax vestan við Þorlákshöfn.

Aðgangur að ferskvatni, jarðsjó og raforku er sagður búa til hagstæð skilyrði fyrir landeldi og sjálfbæra matvælaframleiðslu.

Hefja áframeldið í vetur

Félagið rekur nú þegar seiðastöð og stefnt er að því að fyrsti áfangi áframeldis, með 5.000 tonna ársframleiðslugetu, verði tekinn í notkun í vetur.

Thor landeldi hefur leyfi fyrir 20.000 tonna ársframleiðslu og vinnur að því að auka framleiðsluheimildir sínar í allt að 40.000 tonn á ári í áföngum.

Steinþór Pálsson, forstjóri Thor landeldis, segir í tilkynningunni að Thor sé að byggja upp nýja útflutningsgrein á grunni íslenskra auðlinda og að samstarfið við ON sé mikilvægur hluti af þeirri uppbyggingu.

Þorlákur Ómar Guðjónsson fjármálastjóri Thor landeldis, Steinþór Pálsson, forstjóri Thor landeldis, Árni Hrannar Haraldsson,  framkvæmdastjóri ON, Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri ON og Hjálmar Helgi Rögnvaldsson, forstöðumaður Viðskiptaþróunar og orkumiðlunar ON. Ljósmynd/ON

„Með aukningu á raforkusamningi úr 5 í 10 MW, ásamt viljayfirlýsingu um frekari raforku, getum við haldið áfram áfangaskiptri uppbyggingu af fullum krafti í samræmi við leyfi félagsins,“ segir Steinþór.

Fram kemur að raforka sé ein af grunnforsendum landeldis og að tryggur aðgangur að henni skipti miklu fyrir uppbyggingu greinarinnar.

Verkefni sem fellur að áherslum ON

Með samningnum er ON sagt styðja við atvinnustarfsemi sem búi til störf, auki útflutningstekjur og styrki atvinnulíf í nærsamfélaginu.

„Aðgangur að áreiðanlegri raforku er lykilforsenda uppbyggingar í landeldi og ánægjulegt að styðja við áframhaldandi vöxt Thor landeldis og atvinnustarfsemi í Ölfusi með þessum samningi,“ segir Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri ON, í tilkynningunni.

„Verkefnið fellur vel að áherslum ON um að skapa verðmæti úr raforkunni með því að styðja við atvinnuuppbyggingu, útflutning og matvælaframleiðslu hér á landi. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við Thor á komandi árum.“

Fram kemur að samstarf ON og Thors landeldis hafi byrjað 2023.

„Með nýjum samningi styrkja fyrirtækin grundvöll áframhaldandi uppbyggingar og verðmætasköpunar á svæðinu.“

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅