Fyrsta mark Hilmars

Hilmir Rafn Mikaelsson skoraði annað mark Sigma Olomouc í 3:2-tapi liðsins gegn Mlada Boleslav í efstu deild Tékklands í knattspyrnu í dag.

Hilmir Rafn Mikaelsson skoraði í dag.

Hilmir Rafn Mikaelsson skoraði í dag. mbl.is/Eyþór Árnason

Hilmir Rafn Mikaelsson skoraði annað mark Sigma Olomouc í 3:2-tapi liðsins gegn Mlada Boleslav í efstu deild Tékklands í knattspyrnu í dag.

Sigma Olomouc er í sjötta sæti með 24 stig eftir 16 umferðir og Mlada Boleslav er í öðru sæti með 31 stig.

Sigma Olomouc var 3:0 undir í hálfleik en Hilmar kom inn á af varamannabekknum á 66. mínútu og skoraði annað mark liðsins sem minnkaði muninn í 3:2 en Sigma tókst ekki að jafna.

Hilmar kom til liðsins í júní á þessu ári og þetta var fyrsta mark hans í deildinni.

Davíð Kristján Ólafsson spilaði allan leikinn í 3:1-sigri Polonia á Odra Opole á útivelli í 1. deild Póllands í dag. Polonia er á toppi deildarinnar með 29 stig eftir 16 umferðir.

Ágúst Orri Þorsteinsson lagði upp sigurmark Excelsior gegn Telstar í Íslendingaslag í hollensku deildinni í dag. Lokatölur voru 1:0 og Ágúst spilaði 80 mínútur í leiknum. Nökkvi Þeyr Þórisson spilaði fyrstu 69 mínúturnar með Telstar.

Excelsior er í tíunda sæti með sautján stig eftir fjórtán umfeðrir. Telstar er í 16. sæti, fallsæti, með tíu stig.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读