Svíþjóð - Ísland, staðan er 35:21
Svíþjóð og Ísland eigast við í seinni vináttulandsleik þjóðanna í undirbúningi fyrir EM kvenna í handbolta í Halmstad í Svíþjóð klukkan 16:15.
Svíþjóð fór illa með íslenska kvennalandsliðið í handbolta í síðasta vináttuleik liðsins fyrir EM í dag. Lokatölur voru 34:21.
Ísland vann fyrri leik liðanna síðastliðinn fimmtudag, 29:28, en Svíarnir völtuðu yfir liðið í dag.
Svíþjóð var með yfirhöndina frá upphafi leiks og komst 6:1 yfir eftir aðeins fimm mínútur. Svíarnir sóttu hratt með hraðaupphlaupum og seinni bylgjum og íslenska liðið átti fá svör. Johanna Bundesen, markmaður Svía, átti frábæran leik og varði hvert skot á eftir öðru í fyrri hálfleik sem hjálpaði ekki sjálfstrausti íslenska liðsins í sókn. Ísland var með tíu tapaða bolta í fyrri hálfleik og heimakonur refsuðu grimmt fyrir mistök Íslendinga. Svíþjóð komst mest 11 mörkum yfir í fyrri hálfleik og staðan var 19:9 þegar liðin gengu til búningsklefa.
Íslenska liðinu gekk aðeins betur í seinni hálfleik og náði að minnka muninn í níu mörk en komst aldrei nær sænska liðinu í seinni hálfleik og lokatölur voru 34:21.
Mörk Íslands:
Sandra Erlingsdóttir var markahæst með 6 mörk, þar af fimm úr vítum. Sonja Lind Sigsteinsdóttir 3 mörk, Díana Dögg Magnúsdóttir 3 mörk, Lovísa Thompson 3 mörk, Katrín Anna Ásmundsdóttir 2 mörk, Elín Rósa Magnúsdóttir 2 mörk, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 1 mark, Thea Imani Sturludóttir 1 mark.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗