Man. Utd - Brentford, staðan er 0:4
Manchester United og Brentford eigast við í 12. umferð ensku úrvalsdeildar karla í fótbolta á Old Trafford í Manchester klukkan 15.
Manchester United mátti þola stóran skell á heimavelli þegar liðið tapaði 4:0 fyrir Brentford í 12. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á Old Trafford í Manchester í dag.
Þetta var annar leikur Argentínumannsins Mauricio Pochettino við stjórnvölinn hjá United en liðið tapaði einnig 4:0 í fyrsta leik hans, gegn Liverpool.
United er í 19. sæti deildarinnar með átta stig og gæti setið á botninum eftir leiki morgundagsins takist Crystal Palace að vinna Hull. Brentford er hins vegar í fimmta sæti með 20 stig.
United hefur þá einungis unnið einn leik á tímabilinu en hann kom í annarri umferð gegn Ipswich.
Callum Wilson skoraði tvö fyrstu mörk Brentford í fyrri hálfleik og Dango Ouattara lagði bæði upp.
Wilson kom Brentford yfir á 19. mínútu eftir að hafa fengið boltann, tekið eina snertingu og skotið honum í netið.
Á 32. mínútu tvöfaldaði hann forystuna þegar Ouattara fann hann inni í vítateig United og Wilson skoraði af stuttu færi.
Kristoffer Ajer bætti við þriðja markinu á 82. mínútu. Enn á ný var Ouattara á ferðinni með stoðsendingu en boltinn datt fyrir Norðmanninn sem smellti honum í þaknetið.
Þjóðverjinn Kevin Schade innsiglaði síðan stórsigurinn í blálokin þegar hann vippaði boltanum skemmtilega yfir Senne Lammens eftir sendingu í gegn frá Michael Kayode.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


