Elvar tilnefndur
Körfuboltamaðurinn Elvar Már Friðriksson er í hópi fimm leikmanna sem tilnefndir eru af FIBA sem besti leikmaður fyrsta leikdagsins í undankeppni HM 2027.
Elvar átti stórleik þegar Ísland sigraði Bosníu, 113:101, síðastliðinn fimmtudag. Hann skoraði 30 stig, gaf 10 stoðsendingar, tók fjögur fráköst og stal boltanum í tvígang.
Hægt er að kjósa Elvar á heimasíðu Alþjóðakörfuknattleikssambandsins hér.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗