Myndskeið: Bálreið og blöskrar aðkoman

Sutcliffe sýnir frá aðkomunni í Reykjadal á Instagram.

Breskri konu blöskraði illilega þegar hún kom að baðstaðnum í Reykjadal. Lætur hún ferðamenn heyra það og sýnir frá aðkomunni.

Rachel Sutcliffe starfar sem jöklaleiðsögumaður á Íslandi yfir sumartímann.

Þar gekk hún fram á svo mikið magn af óhreinum fötum, handklæðum og bjórdósum, að hún endaði á að bera með sér 15 kg af rusli í poka til baka.

Breska dagblaðið Daily Mail fjallar um málið í dag, en Sutcliffe deildi myndskeiðinu 23. október. Þar má heyra hana bálreiða blóta þeim sem höfðu skilið svona við náttúruperluna.

Gangan niður tók eina og hálfa klukkustund

Í samtali við blaðið segir Sutcliffe að gangan niður aftur hafi tekið um eina og hálfa klukkustund. Hún hafi lagt nógu snemma af stað til að verða fyrst á staðinn.

Þegar aðra gesti bar að spurði hún hvort þeir gætu hjálpað til við að bera eitthvað af ruslinu niður.

Sumir samþykktu það en aðrir létu sem þeir heyrðu ekki í henni.

„Fjórir ungir menn sögðust ætla að gera það. Síðan gengu þeir fram hjá mér um 30 mínútum eftir að ég lagði af stað niður, því ég fór hægt og þurfti sífellt að stoppa.

Þeir virtust svolítið vandræðalegir og gengu mjög hratt fram hjá mér. Þeir buðust ekki einu sinni til að hjálpa mér með ruslapokann, sem er sorglegt.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅