Swansea að kaupa Frey

Velska knattspyrnufélagið Swansea er nálægt því að ná samkomulagi við Rosenborg um kaup á Frey Alexanderssyni.

Freyr Alexandersson.

Freyr Alexandersson. Ljósmynd/Brann

Velska knattspyrnufélagið Swansea er nálægt því að ná samkomulagi við Rosenborg um kaup á Frey Alexanderssyni.

Sky Sports segir frá en félögin hafa átt í viðræðum og eru þær komnar á lokastig.

Freyr staðfesti á miðvikudag að Swansea hefði haft samband við sig en Freyr stýrir Rosenborg gegn Molde í mikilvægum leik í norsku deildinni í dag. 

Ashley Williams, bráðabirgðastjóri Swansea, verður áfram við stjórnvölinn þegar liðið tekur á móti Cardiff í nágrannaslagnum í ensku B-deildinni í Wales á morgun.

Williams hefur stýrt liðinu ásamt þjálfarateymi félagsins, þeim Joe Allen, Leon Britton og Kris O’Leary, frá því að Vitor Matos yfirgaf félagið og tók við Strasbourg í síðustu viku.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读