Ætlum okkur að spila góðan bolta
Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Úkraínu í undankeppni EM 2028 í Laugardalshöllinni næstkomandi miðvikudagskvöld.
Landsliðsfyrirliðinn Ómar Ingi Magnússon er á sínum stað í hópnum og býst við áhugaverðum leik. Ísland mætir síðan Eistlandi á útivelli á sunnudaginn í seinni leik sínum í landsleikjaglugganum.
„Það er sérstaklega skemmtilegt að spila heima í Laugardalshöllinni,“ sagði Ómar Ingi í samtali við Morgunblaðið.
Hann hélt áfram:
„Við viljum vinna báða leikina og gera þetta vel. Við ætlum okkur að spila góðan bolta og vera stöðugir. Við einbeitum okkur að okkar leik þótt við höfum ákveðin atriði í huga varðandi andstæðinginn. Við viljum samt fyrst og fremst framkvæma okkar hluti vel.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗