Faðmlög og hlýja á kyrrðarstund í Fossvogskirkju

Hluti skipverja á Jökli ÞH sat kyrrðarstund í Fossvogskirkju þar sem skipskaðans og lífs þeirra þriggja sem fórust í sjóslysinu á miðvikudag var minnst.

Á myndinni má sjá hinn átján ára Ágúst Elí Gerðarson í faðmlögum við fyrrverandi skipverja á Jökli ÞH en nokkrir fyrrverandi samstarfsmenn skipbrotsmannanna mættu til að sýna samhug sinn í verki. Auk skipverja og fyrrverandi samstarfsmanna þeirra voru fjölskyldur og aðstandendur á meðal viðstaddra. Hvarvetna mátti sjá fólk í faðmlögum.

Samráðsvettvangur trúfélaga og lífsskoðunarfélaga á Íslandi stóð fyrir athöfninni þar sem fólk sat saman og naut samverunnar. Meðal gesta var Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands, sem ræddi stuttlega við skipverja og aðstandendur þeirra. Þá bauðst gestum að tendra kerti til minningar um hina látnu.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - 200 mílur」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读