Aflinn rétt norðan við tonn á tímann

Sigurborg SH og Drangey SH.

Sigurborg SH og Drangey SH. Ljósmynd/Samsett/Fisk Seafood

Skip Fisk Seafood, Sigurborg SH og Drangey SK, lönduðu afla sínum á Grundarfirði og Sauðárkróki í dag.

Sigurborg kom til Grundarfjarðar með um 72 tonn sem skiptust í um 20 tonn af þorski, um 17 tonn af ýsu og um 17 tonn af karfa, að því er fram kemur á vef Fisk.

Þá hafi einnig verið í aflanum um 5 tonn af skarkola og um 4 tonn af ufsa.

„Sigurborg fór víða í veiðiferðinni, en þeir köstuðu fyrst vestur af Nesi og fóru svo suður og tóku nokkur höl vestan við Sandgerði, áður en þeir héldu alla leið norður á Halann,“ segir í frétt útgerðarinnar.

Þá er Drangey SK sögð hafa komið til Sauðárkrókshafnar með um 146 tonna afla í morgun.

„Þar af voru um 132 tonn af þorski en lítið í öðrum tegundum.“

Fram kemur að Drangey hafi byrjað veiðiferðina á Sporðagrunni í frekar leiðinlegu veðri, norðanátt upp á 25 metra á sekúndu, og rólegri veiði.

„Daginn eftir skánaði veðrið og þá var haldið norður á Hraun þar sem veiðin var betri.“

Haft er eftir Guðmundi Ágústi Guðmundssyni stýrimanni að þar hafi verið þokkalegur afli, engin læti en drjúgt.

„Þegar veiðin fór að minnka þar færðum við okkur yfir á Ostahrygg og restuðum túrinn þar síðasta sólarhringinn,“ segir hann.

Veiðin hafi verið „rétt norðan við tonn“ á tímann.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅