„Eins og að eignast hlut í píramídunum“

Um það bil hálf öld er liðin síðan lón með steinefnaríkum jarðsjó tók að myndast við orkuverið í Svartsengi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alexander Jensen Hjálmarsson tekur undir að ýmsir óvissuþættir kunni að lita fyrirhugað hlutafjárútboð Bláa lónsins en hann segir reksturinn standa nokkuð vel og bendir á að félagið sé alveg einstakt.

Alexander er greinandi hjá Akkri og hefur fylgst vel með Bláa lóninu í áranna rás. Hann segir margt jákvætt við það ef Bláa lónið verður skráð á markað og það muni t.d. auka á fjölbreytnina í Kauphöllinni.

„Þegar rætt er um stoðir hagkerfisins er bent á orkuframleiðsluna, sjávarútveginn og ferðaþjónustuna en ekki hefur alltaf verið auðvelt að fjárfesta í þeim greinum. Það gilda reglur um eignarhald útlendinga í sjávarútvegsfyrirtækjum og orkufyrirtækin eru óskráð, en Icelandair hefur verið fulltrúi ferðaþjónustunnar á markaðinum og telst þó varla hefðbundið íslenskt ferðaþjónustufyrirtæki. Með Bláa lóninu kæmi valkostur fyrir fjárfesta sem væri það sem kallað er „pure play“; íslenskt ferðaþjónustufyrirtæki sem er mjög skýrt afmarkað við íslenskan ferðaþjónustumarkað.“

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅