Þurfa að sýna fram á öryggi áhafna

Sigrid Merino, framkvæmdastjóri Ábyrgra fiskveiða og Gísli Níls Einarsson, framkvæmdastjóri Öldu Öryggi. Ljósmynd/Alda

Ábyrgar fiskveiðar og Alda Öryggi hafa undirritað samstarfssamning sem sagður er auðvelda útgerðum að sýna fram á, með gögnum úr daglegum rekstri, að aðbúnaður, réttindi og öryggi áhafna standist kröfur alþjóðlega staðalsins FISH-standard for Crew.

„Báðir aðilar hafa verið í þróunarsamstarfi um að gera Ölduna að heildstæðu umsjónarkerfi byggðu á staðlinum með því að nýta lausn Öldunnar sem er nú þegar er til staðar og í notkun hjá mörgum af stærstu útgerðum landsins,“ segir í tilkynningu.

Samgöngustofa viðurkennir Ölduna

Sömu skráningar eru sagðar nýtast bæði gagnvart staðlinum og íslenskum lögum og reglum.

„Þær nýtast einnig þegar samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 188 um vinnu við fiskveiðar verður innleidd í íslensk lög seint á næsta ári, 2027.“

Þá er Samgöngustofa sögð hafa viðurkennt Ölduna sem stafrænt öryggisstjórnunarkerfi fyrir fiskiskip.

Haft er eftir Friðriki Friðrikssyni, stjórnarformanni Ábyrgra fiskveiða, að það sé mikil áskorun að sýna fram á framkvæmd staðalsins um borð í 134 skipum með pappírum einum saman.

„Í samræmdu umsjónarkerfi eru sömu kröfur metnar á sama hátt hjá öllum útgerðum og við sjáum fyrr hvar þarf að bæta úr,“ segir Friðrik.

Sjómenn njóti góðs af

Þá segir Gísli Níls Einarsson, framkvæmdastjóri Öldu Öryggis, að Ísland hafi lengi staðið framarlega í öryggismálum sjómanna og geti núna sýnt það svart á hvítu.

„Það sem gert er um borð er skráð jafnóðum. Þá koma tækifæri til úrbóta fyrr í ljós og hægt er að bregðast strax við, og það eru sjómennirnir sem njóta góðs af því,“ segir Gísli.

Nýja samstarfið verður kynnt gæða- og öryggisstjórum útgerða í Sjávarklasanum 4. nóvember næstkomandi.

Kynningin er sögð vera í tengslum við Sjávarútvegsráðstefnuna sem fer fram seinni part vikunnar.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅