Yfir 200 manns fluttir úr tjaldbúðum í París
Tjaldbúðirnar voru undir lestarteinum á línu 2 í neðanjarðarlestakerfi borgarinnar.
Yfir 200 manns úr hópi farandfólks, sem hafðist við í tjöldum og bráðabirgðaskýlum undir upphækkuðum lestarteinum í París, voru fluttir á brott í aðgerðum undir stjórn lögregluyfirvalda í borginni.
Tjaldbúðirnar voru undir lestarteinum á línu 2 í neðanjarðarlestakerfi borgarinnar.
Borgaryfirvöld segja að yfir 450 pláss séu laus í neyðarathvörfum.
Starfsfólk hjálparsamtaka varar hins vegar við því að flestir þeirra sem fluttir voru á brott fái aðeins tímabundið húsaskjól og að margir verði að öllum líkindum aftur komnir á götuna innan fárra vikna.
Emmanuel Grégoire, borgarstjóri Parísar, hefur heitið því að binda enda á það sem hann kallar „ómannsæmandi aðstæður“.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗