Útilokar ekki fall Manchester United
Erik ten Hag, fyrrverandi knattspyrnustjóri karlaliðs Manchester United, segir raunverulega hættu á því að félagið falli úr ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.
Manchester United hefur farið afleitlega af stað á tímabilinu og situr í 17. sæti deildarinnar með sjö stig og er með jafnmörg stig og Crystal Palace, sem er í 18. sæti, en betri markatölu.
United hefur aðeins unnið tvo leiki í öllum keppnum á tímabilinu og aðeins annar þeirra var í ensku úrvalsdeildinni. Sá sigur kom gegn Town 30. ágúst.
Getur verið erfitt að komast upp úr honum
Ten Hag stýrði Manchester United í tvö og hálft ár og vann bæði enska deildabikarinn og enska bikarinn með liðinu á þeim tíma. Hann telur þó ekki hægt að útiloka að félagið falli úr efstu deild í fyrsta sinn síðan árið 1974.
„Það er svo sannarlega möguleiki að United falli úr ensku úrvalsdeildinni, enda eru öll liðin góð. Hóparnir eru góðir og þjálfararnir sömuleiðis.
Ef maður lendir einu sinni á rangri braut og festist í vítahring getur verið mjög erfitt að komast upp úr honum,“ sagði Ten Hag í viðtali við þáttinn Goedemorgen Eredivisie á ESPN í Hollandi.
United fær Aston Villa í heimsókn í næstu umferð deildarinnar.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗