Öllum finnst gott að komast heim
Landsliðsfyrirliðinn Ómar Ingi Magnússon er spenntur fyrir komandi verkefni íslenska landsliðsins í handbolta, sem mætir Úkraínu og Eistlandi í undankeppni EM 2028.
Ísland tekur á móti Úkraínu í Laugardalshöll á miðvikudaginn og sækir síðan Eistland heim á sunnudaginn.
Íslenska landsliðið kom saman til æfinga í fyrsta sinn fyrir leikina í Safamýrinni í dag.
„Ég hlakka mikið til að spila þessa leiki. Þetta verður fjör,“ sagði Ómar Ingi í samtali við mbl.is.
„Þetta er fyrsta æfingin í dag. Ég kom í gær og það eru einhverjir á leiðinni heim núna. Við tökum þessar tvær æfingar og verðum svo klárir í slaginn.“
Menn eru léttir í lund
Ómari finnst ávallt skemmtilegt að koma heim og hitta samherja sína í landsliðinu.
„Það er alltaf geggjað að hitta strákana. Maður sér þá ekki oft og því er alltaf góð stemning í hópnum.
Menn eru léttir í lund og ég held að öllum finnist gott að komast heim, æfa saman og spila saman. Svo er frábært að spila í Laugardalshöllinni, sérstaklega þegar hún er full,“ sagði Ómar Ingi.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗