Hvorki Rúrik né eiginmaðurinn mættu

Heidi Klum heldur besta hrekkjavökupartí heims. Eiginmaður hennar Tom Kaulitz var á tónleikaferðalagi. Það var einnig brjálað að gera hjá Rúrik Gíslasyni. Samsett mynd

Þýska fyrirsætan Heidi Klum er drottning hrekkjavökunnar en hún hélt sitt árlega hrekkjavökupartí á dögunum. Það voru tveir lykilmenn sem mættu ekki að þessu sinni. Rúrik Gíslason þúsundþjalasmiður var upptekinn. Eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Tom Kaulitz, var heldur ekki á svæðinu. 

Rúrik er með það á ferilskránni að hafa fengið boð í partí Klum. Að þessu sinni var hann hins vegar upptekinn. Í síðustu viku var hann á frumsýningu IceGuys á Íslandi og flaug síðan til Þýskalands til þess að taka þátt í danssýningu. 

Klum mætti á veisluna sem hönd. Þar var hún ekki spurð út í fjarveru Rúriks en þurfti að svara út í fjarveru eiginmann síns að því fram kemur á vef E!. 

„Maðurinn minn gat ekki verið hér í dag því hann er á tónleikaferðalagi núna, og ég ætla að slást í för með honum,“ sagði Klum í partíinu. Hún benti á trúlofunarhringana sína og giftingarhringinn. „En hann gat ekki verið hér í dag, svo þú veist, hann er alltaf með mér.“

Tom Kaulitz og Heidi Klum eru bæði þýsk. Rúrik Gíslason er afar vinsæll í Þýskalandi. AFP

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅